"Þótt þú gleymir Guði"
Þótt þú farir um framandi höf,
í fjarlægum deildum jarðar,
og sjóirnir hyggist að svelgja þitt fley
og séu þér lífsvonir sparðar.
Á hinstu stund' ertu halaður upp
Hinir þá týna hver sér.
Því þótt þú gleymir Guði,
þá gleymir Guð ekki þér.
Þótt þú í kinahverfið inn,
klaufskist í sorta nætur.
Og kínamaður með stóran sting
stálega gefur þér gætur.
Á elleftu stundu þá fær hann flog
og fellur að fótum sér.
Því þótt þú gleymir Guði,
þá gleymir Guð ekki þér.
Þótt bráðkvaddan missirðu miðilinn þinn
sem ei máttir við að sjá af.
Og allt renni eftir einni slóð
út í hið hyldýpsta haf.
Í krísunni vitrast andi per V.S.O.P.
óvígur hjálpræðisher.
Því þótt þú gleymir Guði,
þá gleymir Guð ekki þér.
(Megas) |